Ísland vann Lúxemborg 3:0 á útivelli í öðrum leik sínum í Þjóðadeildinni. Sigurinn kom íslenska liðinu í efsta sæti riðilsins eftir jafnteflið við Eistland í fyrstu umferð.

Andri Lucas Guðjohnsen braut ísinn á 13. mínútu og Orri Steinn Óskarsson bætti við öðru marki áður en fyrri hálfleik lauk. Guðlaugur Victor Pálsson skallaði síðan inn þriðja markið á 73. mínútu. Ísland hélt hreinu og tekur næst á móti Búlgaríu á Laugardalsvelli laugardaginn 3. október klukkan 16.

Laugardalsvöllur í júlí 2022. Safnmynd. Mynd: Quintin Soloviev. Wikimedia Commons. CC BY 4.0. Myndin er birt í stærð sem hentar skjánum og getur verið skorin til innan birtingarrammans.