Ísland varð að sætta sig við 1:1 jafntefli við Eistland í fyrsta leik sínum í Þjóðadeildinni. Andri Lucas Guðjohnsen skallaði fyrirgjöf Hákons Arnars Haraldssonar í netið undir lok fyrri hálfleiks og heimamenn höfðu forystu í hléi.
Hákon Rafn Valdimarsson varði vítaspyrnu Kevor Palumets snemma í síðari hálfleik. Tólf mínútum síðar skallaði Maksim Paskotsi hins vegar inn jöfnunarmark Eista. Ísland fékk færi til að taka forystuna aftur en tókst ekki að skora. Næsta verkefni er útileikur gegn Lúxemborg á þriðjudag.
Laugardalsvöllur í júlí 2022. Safnmynd. Mynd: Quintin Soloviev. Wikimedia Commons. CC BY 4.0. Myndin er birt í stærð sem hentar skjánum og getur verið skorin til innan birtingarrammans.
