Ísland vann Gíbraltar 4:0 í fyrsta leik sínum í undankeppni EM landsliða skipaðra leikmönnum 17 ára og yngri. Íslenska liðið skoraði þrisvar áður en flautað var til hálfleiks.
Mikael Máni Þorfinnsson, Bjarki Már Brynjarsson og Magnús Daði Ottesen sáu um mörkin í fyrri hálfleik. Sjálfsmark Gíbraltar í þeim síðari innsiglaði sigurinn. Í hinum leik riðilsins vann Bosnía og Hersegóvína Grikkland með tveimur mörkum gegn engu. Ísland mætir heimamönnum í næsta leik á laugardag.
Laugardalsvöllur í júlí 2022. Safnmynd. Mynd: Quintin Soloviev. Wikimedia Commons. CC BY 4.0. Myndin er birt í stærð sem hentar skjánum og getur verið skorin til innan birtingarrammans.
