Skráning er hafin á Íslandsmót meistaraflokka í futsal 2027. Félög þurfa að tilkynna þátttöku fyrir sunnudaginn 11. október og verður keppt í bæði karla og kvennaflokki.

Forkeppnin verður haldin frá 14. nóvember til 21. desember með hraðmótsfyrirkomulagi. Úrslitakeppnin fer síðan fram dagana 8. til 10. janúar í Virkinu, íþróttahúsi Víkings í Safamýri, með fullum leiktíma. Þátttökugjaldið er 50 þúsund krónur. Leikmanni er aðeins heimilt að leika með einu félagi í mótinu á hverju tímabili.

Futsalleikur í Belfort í Frakklandi árið 2015. Safnmynd til skýringar á íþróttinni. Mynd: Thomas Bresson. Wikimedia Commons. CC BY 3.0. Myndin er birt í stærð sem hentar skjánum og getur verið skorin til innan birtingarrammans.