Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði beint úr aukaspyrnu þegar Ísland gerði 1:1 jafntefli við Frakkland í undankeppni EM undir 21 árs. Leikið var á Þróttarvellinum í Laugardal.
Frakkar komust yfir á 31. mínútu en Daníel Tristan jafnaði á þeirri 52. Fleiri mörk urðu ekki skoruð. Frakkland er áfram efst í riðlinum með sautján stig en Ísland hefur tólf í þriðja sæti. Sviss, sem kemur næst í heimsókn, er tveimur stigum fyrir ofan íslenska liðið. Sá leikur verður þriðjudaginn 29. september.
Laugardalsvöllur í júlí 2022. Safnmynd. Mynd: Quintin Soloviev. Wikimedia Commons. CC BY 4.0. Myndin er birt í stærð sem hentar skjánum og getur verið skorin til innan birtingarrammans.
